Færsluflokkur: Bloggar

Svakalega líður tíminn hrattttttttttttttttttttt

Góðan dag, svaka lega líður tíminn hratt ég á bara ekki orð. Kominn Október, tók eftir því í gærkvöldi úffffffffff.

En hvað um það, við erum á leiðinni heim á klakann sunnudaginn 14. október, þarf til tannlæknis, og ýmislegt fl., krakkarnir bíða spennt eftir okkur og auðvitað mamma :c)

En stóru fréttirnar eru þær að krakkarnir koma með okkur út til noregs þann 19. október og verða hjá okkur i 10 daga til 29 október, vetrar-skipulagsdagar eða eitthvað þannig í skólanum og Hanna María á fullu í sínum skóla svo að þetta passar allt saman.

Stutt skrif í dag, það er svo hel..... mikið að gera hjá mér.

Skrifumst :c)


Dagurinn í gær

... úfffffff ég veit ekkert hverning á að byrja á svona bloggi en ætla að reina samt, veit að ég á eftir að gera þónokkrar innsláttarvillur (vil ekki kalla þetta stafsetningarvillur) hehehe, en látum vaða....

Já dagurinn í gær var bara þokkalega góður, kláraði að setja upp nokkrar flúorlampaperur á skrifstofunni þar sem ég vinn, færði gögn frá gamla harða diskinum í vinnu-makkanum yfir í vinnu-makkann þannig að hann virkar, fékk mér kaffibolla að þessu loknu og tjattaði við vinnuveitandann um kaup á vörubíl eða öllu heldur dráttarbíl fyrir olíuborpallaherminn. Henntist með honum út til að skoða og sjá hvað væri til sölu og hvað hentar fyrir þetta stóra verkefni.

Jú jú rétt til getið þá er ég á leiðinni í enn eitt starfið eða öllu heldur að bæta við mig starfi innan fyrirtækisins, verð líklega bílstjóri fyrir olíborpallaherminn :c)

ooo á meðan ég man, það var vinur minn Ofur Baldur sem kom mér af stað í bloggið en ég var svo busy að ég gerði ekki neitt í því fyrr en vinur minn hann Gunnar Hávarðarson sagði "lengra og ekki hingað".... bara til að hafa hlutina á hreinu.

... en aftur að vinnunni, ég byrjaði hjá fyrirtæki sem heitir 2 Media AS sem ljósmyndari, gékk mjög vel og allt það þar til að fyrirtækið var selt fyrir skemstu, á sama tíma og ég vann þar var ég að vinna hjá gröfufyrirtæki en bara stutt og einnig hjá móðurfyritæki 2 Media sem heitir First Interactive (www.first-interactive.com), þar hef ég verið að gera sitt lítið af hverju, meðal annars farið til Singapore að setja upp eitt st. olíuborpallahermi, skemmtileg ferð og jafnframt svolítið erfið. Í dag starfa ég eingöngu hjá First... og þá aðallega sem húsvörðu eða þannig, Það hefur vantað mann eins og mig lengi, það þarf að skipta um perur, laga hurðir, setja upp nýjar innréttingar fyrir nýjar skrifstofur, þvo gluggana, hjálpa til við hitt og þetta og svo það nýjasta að ég verð að öllum líkindum bílstjóri hjá fyrirtækinu ásamt ýmsu öðru.

Ég læt þá staðar numið og kem mér í vinnuna, það er stór dagur frammundan, val á bíl í dag og fl. fl.

...góðar stundir

Don Roberto


Löng meðganga... eða hvað :c)

Góðan dag, þið sem hafið komið hingað. Ég veit að ég sagðist ætla að skrifa blogg og allt það, en það hefur bara veriði svo margt annað sem ég hef verið að gera að ég hreinlega hef ekki haft tíma til að gera það frekar enn annað.
Þetta átti allta að vera svo flott og fínt og ég veit ekki hvað en annað hefur komið á daginn, þetta er ekk eins auðvellt og maður heldur... ég fór í gengnum hinar ýmsustu stillingar og ég hreinlega verð að játa það að ég lennnnnnnnnti á villigötum eða öllu heldur köngulóarvef. En fyrir tilstuðlan góðs vinar míns sem hefur hlotið "HÆÐSTU EINKUNN" frá Iðnskólanum í Reykjavík kom ég mér af stað en það tók samt heila nótt frá því að ég talaði við hann, hann er jú "MINN BESTI VINUR", þar til að ég loksins kom mér af stað. Ég ætla ekki að lofa neinu en vonandi verðu þetta þokkaleg bloggsíða. Ég veit að ég þarf aðeins að breyta útlitinu og það verðu gert "ljótlega" eða þannig heheheh

Allavegna verið þið hjartalega velkomin hingað og ég vona án þess að lofa að ég hafi gaman af þessu öllu saman hehehe.

Verið óhrædd að tjá ykkur... ég bít ekki og ég get ekki komið og ... eins og gefur að skylja.

Ykkar eini sanni vinur í Noregi.

Roberto Fragapane


« Fyrri síða

Ég - Me

Robert Fragapane
Margir telja mig vera sig, en ég er bara ég og enginn annar getur farið í mín spor...

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 337

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband