23.10.2007 | 22:33
Mánudagur - Þriðjudagur í Október
Sælt veri fólkið. Mánudagurinn var flottur, fórum í verslunarleiðangur, borðuðum heilan helling af góðum mat og smá sælgæti og kíktum út um alllllllt. Fórum í háttin og allir sælir og kátir með erfiði dagsins.
Þriðjudaginn var líka flottu, vöknuðum snemma og keyrðum í bæinn, kl. 11.15 vorum við stödd fyrir utan leikhús í Stavanger og skelltum okkur á leiksýningu sem er sérstaklega ætluð börnum á aldrinum 4 - 8 ára. Þetta var alveg svakalega gaman, það voru sérstök sæti eða bekkir sem í voru fullt af púðum sem allir gátu setið á, fullorðnir gátu svo setið aftar á stólum, við settumst þar, leiksýningin fjallaði um tvær vinkonum sem vour að leika sér saman og datt í hug að leita að tímanum og allt snérist um að vita sem mest um hann og allir krakkarnir gátu tekið þátt. SDR og ÍER voru svo hugfangin að það hálfa væri nóg, hreint út sagt frábært leikrit og þau systkynin skemmtu sér vel .
Síðan var haldið að brautarstöðinni í Stavanger og þar var tekin lest til næsta bæjar "SANDNES", ÍER og SDR höfðu aldei áður farið í lest, frábært að sjá brosið sem kom á andlitiði á þeim þegar þau uppgötvuðu að þau væru að fara í lestarferð . Lestin fór að vísu ekki hratt en það var alveg nógur hraði samt, þegar við komum til Sandnes þá lág leiðin í dótabúð til að skoða "Warhammer 40000"dót fyrir ÍER, sá var glaður og að sjálfsögðu var keypt og ... þarf ekki að lengja það frekar hehehehh. Einnig var farið í dótabúið fyrir SDR og keypt og ... og ... ég held að ég þurfi að kaupa auka tösku fyrir þau líka . Síðan var haldið heim á leið, elduðum kjúkklinga vængi með BBQ sósu og SDR og ÍER borðuðu á sig gat hohohohoh, tennur burstaðar, lesin bók fyrir SDR, ÍER fékk að horfa á "Trans Former" bíómyndina og þegar ég leit inn áður en ég hóf þessi skrif sá ég fallega gullmola með breitt bros á vör, sæl og ánægð med dagsins verk.
Dagurinn á morgunn verður frábær sagði ÍER áður en hann fór í háttinn. Satt er það, en þangað til verðið þið að bíða. Framhald síðar....
kv. við öll
Nýjustu færslur
- 19.3.2008 La bella Sisilia
- 15.3.2008 Ítalía 16. - 24. mars 2008
- 5.3.2008 Hvað heimurinn getur verið fallegur
- 28.2.2008 Ótúlegt en satt, enn ein færslan frá mér húhaaaaaaaaa......
- 25.2.2008 Jú jú það er víst langt komið í Febrúar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
mikið er ég ánægður að börnin þín geti horft á myndir sem ég reddaði þér ég er mjög sáttur við það
ingimar bragi (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 17:45
Hæ sæti!!!
Var bara á röltinu.... og kvitta fyrir komunni!!!!
Frábært að heyra hvað það er gaman hjá ykkur!!!!
Hils pils........... ég
Linda Björk (IP-tala skráð) 24.10.2007 kl. 23:15
Kæri Ingimar Bragi, já takk fyrir myndina
Linda mín, takk fyrir innlitið, ég kíki svo við hjá þér fljótlega og sendi ykkur hlýja stauma frá okkur í noregi.
Roberto (IP-tala skráð) 25.10.2007 kl. 07:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.