21.10.2007 | 20:28
Sunnudagurinn 21 október
Já það sváfu allir mjög vel og lengi. ÍER fór í sturtu, ég rakaði mig og fór líka í sturtu sem og Ellen, SDR vildi frekar fara í sturtu áður en hún færi í bólið. Tókum því rólega fram undir kl. 14. SDR og ÍER fóru út í garð að leika sér með krökkunum sem búa á efri hæðinni. Trampólínið heillar heheh, svakalega eru þau dugleg að hoppa og skoppa. Bæði ÍER og SDR eru búin að eignast góða vini hérna í Noregi og er það bara frábært
Við steiktum vöflur með vinunum og foreldrum þeirra og hoppuðum ennþá meira á trampólíninu. ÍER fór með vini sínum "Øystein" í garðinn við hliðina sem afi hans á og fór að klifra með honum og Einari vini hans uppí trjám sem eru þar. SDR fór með "Ingrid" litlu systur "Østeins" upp að leika í Bratz og eru þær eins og frímerki sem hefur verið sleikt og skellt á pappír
Eftir leiki dagsins, pizzu (afgangar frá því í gær) og vöfluát með ís, rjóma og sultutau var slappað aðeins af. Pabbi settu upp lampa á vegginn hjá SDR svo að hún gæti lesið áður en hún færi að sofa. SDR fór í sturtu og svo beint í rúmið enda klukkan orðin margt, pabbi las fyrir hana og hún sofnaði nánast strax.
ÍER og pabbi fóru í smá Nintendó og Ellen horfði á og fékk líka að keppa en ég held að hún ætti bara að halda sig við alvöru bíla heheh sagði ÍER og hlóg dátt
Á morgunn verður fjör, ÍER ætlar að fara snemma út á brettapallana og æfa sig á nýja brettinu sem hann fékk frá okkur Ellen.
- meiri fréttir á morgunn, hafið góðar stundir eins og við
Nýjustu færslur
- 19.3.2008 La bella Sisilia
- 15.3.2008 Ítalía 16. - 24. mars 2008
- 5.3.2008 Hvað heimurinn getur verið fallegur
- 28.2.2008 Ótúlegt en satt, enn ein færslan frá mér húhaaaaaaaaa......
- 25.2.2008 Jú jú það er víst langt komið í Febrúar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er greinilega kátt í höllinni núna hjá þér Robbi minn. Gaman að lesa þetta, ég hreinlega sé smælið á þær þegar þú skrifar.
Vona að þið hafið áfram svona gaman og gott.
Kk
Drífa pífa appelsína
Drífa (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 12:44
Sæll Gamli bara að prufa þetta dót. Gott að heyra að lambið fór vel i ykkur.
Verðum í bandi
Rúnar Mekka
Rúnar Guðmundss (IP-tala skráð) 22.10.2007 kl. 15:42
Mikið hefði ég viljað hitta ykkur þegar þið voruð hér á landinu, en við hittumst bara næst
Gunnar (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 09:01
já minn kæri það hefði verið frábært en það koma dagar eftir þennann dag heheheh
Robert (IP-tala skráð) 23.10.2007 kl. 21:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.