Dæmisaga sem ég fann á netinu...

Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna.

Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.

Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram.

Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessaður Robert, góð saga, góður boðskapur. Bestu kveðjur, úr Hafnarfirði.

Guðrún Erla (IP-tala skráð) 12.10.2007 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég - Me

Robert Fragapane
Margir telja mig vera sig, en ég er bara ég og enginn annar getur farið í mín spor...

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband