Færsluflokkur: Dægurmál
28.2.2008 | 23:42
Ótúlegt en satt, enn ein færslan frá mér húhaaaaaaaaa......
Júhú, jú jú ótrúlegt en satt eins og segir í fyrisögninni. Ég veit ekki ennþá hvernig ég á að byrja að blogga, en samt þá verðum maður bara að prufa að skrifa eitthvað til að það kallist blogg
Til dæmis þá er miklu hlýrra hér en á Íslandi, að vísu þá hefur verið mikil rigning undafarið (þetta gæti verið góð byrjun á bloggi) en stöku sinnum hefur komið fallegur sólargeisli til að bæta upp vætuna.
Mjög margir af mínu vinum hafa verið duglegir að senda mér línu í tölvupósti, en ég er ekki eins góður við þá að svara til baka, en góður vinur veit betur
Ég á yndislegustu börn í heimi sem gerir mig að ríkasti manni veraldar, ekki slæmt það. Einn daginn spurði ég dóttur mína "Sara Dröfn? Er í lagi að bróðir þinn komi einn til Noregs til mín og Ellenar?" og hún svaraði mér "Já pabbi minn það er ekkert mál, það verðu nú einhver að hugsa um hana mömmu á meðan" sagði hún með bros á vör
Eins spurð ég hana hvort það væri í lagi þótt ég kæmist ekki í 7 ára afmælið hennar, sem var þann 2. febrúar síðastliðinn, var staddur í öngþveiti í Ósló, og hún svarað mér "Já pabbi minn, það er ekkert mál þótt þú komist ekki í afmælið mitt, ég hugsa bara hlýtt til þín á meðan". Það koma alveg tár í augun mín við að skrifa þetta, sniff sniff en ég komst til Íslands og hitti hana daginn eftir og það var alveg magnað að fá knús frá henni og bróður hennar. Færði þeim fallegar gjafir og marga kossa og knús eins og mér einum er lagið.
Hann Ísak Ernir er að verða 13 ára, (8. júní næstkomandi) úff hvað tíminn líður hratt. En hann líður vel að mínu mati allavegana. Hann er besti vinur minn og sonur þar að auki, gott að geta sagt þetta því að það eru ekki margir sem geta hreinlega státað að slíkum vinasamböndum. Hann hefur líka svarað mér vel og á margan hátt á þann veg að ég varð hreinlega orðlaus yfir því hvað hann er vel athugull og hreinlega stórkostlega mannvera.
Hann er kominn í B - Sveit í Skólahljómsveit kópavogs, einnig er hann í leiklist í Borgar- leikhúsinu, hefur leikið í nokkrum hlutverkum, svo sem í "Tekinn" með Auðuni Blöndal, bíómynd sem var sam norrænt samstarf að mig minnir, stundar skólann sinn vel og stendur sig frábærlega í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Það er stoltur faðir í Noregi sem skrifar þetta blogg
Dægurmál | Breytt 29.2.2008 kl. 06:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.2.2008 | 09:07
Jú jú það er víst langt komið í Febrúar
Komið þið sæl og blessuð öll sömul, jú jú langt komið í Febrúar og sólin farin að hækka á lofti
Héðan er allt gott að frétta og mikið að gera og gerast. Núna í morgunsárið sá ég mig tilneyddan til að kíla á það eins og sagt er á íþrótta máli að mér skilst og koma nokkrum óunnum verkefnum í gang aftur. Hentist út því að það var hætt að rigna og tók nokkrar myndir til að sýna ykkur að það er GOTT veður hér í Noregi og bara fallegt. Grasið farið að grænka og nokkrir vorlaukar farnir að skjóta upp kollinum hér og hvar eins og sést á myndunum sem ég tók í morgunn sárið.
Og líka þegar ég koma að bryggjubakkanum fyrir utan vinnuna mína, þá blasti við þessi líka fallegi bryggjupolli með fallegum máva söng eða þannig sko heheheheh. Sjórinn þokkalegur og bara fallegt um að litast.
Ekki annað hægt að segja en að mánudagar séu bara hinir bestu dagar hafið góðan dag elskurnar og verið góð hvort við annað, það margborgar sig....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýjustu færslur
- 19.3.2008 La bella Sisilia
- 15.3.2008 Ítalía 16. - 24. mars 2008
- 5.3.2008 Hvað heimurinn getur verið fallegur
- 28.2.2008 Ótúlegt en satt, enn ein færslan frá mér húhaaaaaaaaa......
- 25.2.2008 Jú jú það er víst langt komið í Febrúar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar